Weblog
Dauðans

Hugleiðingar Tækniskólanema

Póstur

Heima
Skóli


 

 

Mánudagur 7. maí 2001

17:17
Anallinn heldur áfram...
Ekki er Pétur Stál jafn mikið fyrir að taka menn í anal og Sæmi, en þó bar prófið hans í EFV 1003 vott um smáveigis áhuga hans á slíkum athöfnum. Við Skúli vöktum alla nóttina og mættum ferskari en allt í prófið. Svo var bara kæruleisi um kvöldið, fyllerí og vitleysa. Eftir að hafa sofið 3 af síðustu 30 þurfti ekki mikið áfengi til að gera mann kátan. Nú er bara eftir Stjórnun (Seinni bútur), á miðvikudag, og Markaðsfræði á föstudag. Tvö létt próf og svo bekkjarfyllerí á föstudag og Eurovision á Laugardag. Mikil gleði framundan fyrir utan endurtekt í STÆ-ANAL. Vonandi notar Sæmi smá Johnson&Johnson babylotion í þetta skiptið.

Fimmtudagur 3. maí 2001

20:03
Stærðfræði-anall frá helvíti
Hinn góðkunni og góðviljaði stærðfræðimógull, Sæmi K, aka Kjartan, aka Physco, ákvað svona rétt áður en hann yfirgefur Tækniskólann fyrir líftækni-iðnaðinn að taka nemendur sína í Þurran anal. Þetta var gert í morgun í prófi í STÆ AT 2003. Menn voru búnir að liggja sveittir í 2 vikur að læra Flatarheildi, Runur og Raðir, Fourier-raðir og ýmislegt fleira sem fær mann til að gleyma hvað maður heitir. Ég man t.d. ekki hvar ég á heima þar sem ég er búinn að búa hér í skólanum að undanförnu og ekkert farið heim. Það er nokkuð ljóst að fjölmennt verður í endurtekningar prófinu.
Fylgstu með og lestu um það hvort Pétur S (Efnisfræðikennari) sé í sama stuði og Sæmi K og fíli að taka menn í þurrt rassgatið (Von á færslu á laugardaginn).

Sunnudagur 22. apríl 2001

15:45
Dave Clark á gauknum
Nú er liðinn næstum mánuður síðan ég uppfærði þessa síðu einfaldlega vegna þess að ég hef ekki haft frá neinu að segja. Líf mitt er tilbreytingarlaust þessa daganna, svefn, vinna og skóli taka allan minn tíma. En í gærkveldi varð breyting á. Halli vinur minn sannfærði mig um að kíkja aðeins á Gaukinn og sjá eina af gömlu techo-hetjunum, Dave Clark. Kvöldið byrjaði rólega, ég kíkti til Halla, sem á heima nær miðbænum en ég, um 23:30 og án þess að bragða svo mikið sem dropa héldum við fótgangandi niður í bæ. Þegar komið var á Gaukinn tók á móti okkur geysiþéttur slagari "OOOPS I did it again" með Britney Spears. Mér var ekki skemmt. Þess var þó ekki lengi að bíða að lætin byrjuðu. Á sviðið steig ungur drengur, Addi (held ég), og spilaði hörkugott Techno til að hita liðið upp. Til að auka ánægju mína var á dansgólfinu ung dama með kórónu á hausnum, greinilega ofurölvi, og dansaði eins og fótbrotin hæna. Við félagarnir fengum okkur öllara og skelltum okkur svo á gólfið. Þar var dansað og skoppað, með stuttum pásum þó til að væta kverkarnar. Um þrjú leitið gekk svo goðið upp á svið og troðfullur Gaukurinn ætlaði að springa. Þvílíka stemningu hef ég ekki upplifað síðan í kjallaranum á Thomsen í gamla daga. Svitinn lak af liðinu á meðan meistarinn spilaði meðal annars remix af nýjasta single Depeche Mode manna, Dream On. Um fimm leitið voru menn svo búnir að fá nóg og héldu heim á leið, enda ætlunin að læra eitthvað daginn eftir.

Fimmtudagur 29. mars 2001

12:13
Barnaskapur og minnimáttarkennd
Enn og aftur ná Naggar að koma mér á óvart. Í einhverju minnimáttarkasti fór eitthvað stelpugrey með skrattaníð til þess einstaklings sem níður var um. Þar sem arnarar tekur á þessum málum ætla ég ekki að gera það. En hérna komum við inn á mál sem "tekið var fyrir" á fundi Iðnaðartæknifræðinema með deildarstjóra um daginn. Reyndar var ég ekki viðstaddur en fékk eftir fundinn að heyra hvað þar gekk á. Einn bekkjarfélagi minn minntist víst eitthvað á lakkrís í einhverju samhengi. Þetta kom við einhverjar taugar hjá sér eldri nemendum og tóku þeir mína menn á beinið. Nú eigum við víst að kalla lakkrísinn S-ið. Ég er á því að saklaust grín sé af því góða og bara til þess að styrkja hópinn. Allavega eru margir lakkrísmenn tíðir gestir í heimastofunni okkar og fá jafnvel að komast í okkar "800Watts of cooking power" (örbylgjuna) nú að ekki sé talað um samlokugrillið. Smáveigis menntahroki og saklaust grín á ekki að vera til þess að skapa leiðindi og þeir sem láta þetta lakkrístal okkar IT-manna fara í taugarnar á sér eru mestu afturúrkreistingar.

Miðvikudagur 28. mars 2001

16:49
Það hugsa fleiri eins og ég...
...og kunna betur að koma fyrir sér orði. Ef þið hafið einhvern áhuga á að vita hvað ég er að bulla bendi ég á þetta.
Annars er ég að fara í próf í Delphi á morgun og verð að halda áfram að læra. Ég skil ekki fólk sem fílar forritun.
PS. Ef þú vilt læra nýjusu dansana mæli ég með þessu.
PPS. Lakkrís*
*Bekkjarhúmor sem ekki er ætlast til að utanaðkomandi skilji.

Sunnudagur 25. mars 2001

18:15
Steggjapartý í fjósi
Kiddi vinur minn er að fara að gifta sig og þegar það stendur til er hefð að vinirnir komi saman með tilvonandi brúðgumanum og skemmti sér saman. Ákveðið var að bregða sér austur fyrir fjall og kíkja í sund á Selfossi og svo að borða og drekka á bóndabæ rétt við Selfoss. Þessi bónabær er ansi óvenjulegur og býður meðal annars upp á kennslu í línudansi. Það var ákveðið að skella sér inn í fjós og fá kennslu frá frúnni á bænum. Ég hef aldrei á ævinni séð jafn undarlega sjón. 17 drukkin ungmenni í línu að reyna að dansa í takt við kántrí tónlist og baul frá beljunum í fjósinu. Að þessu loknu var drukkið smá í viðbót og svo haldið í bæinn á Klaustrið. Þar var dansað visst afbrigði af línudansi við lítinn fögnuð annarra gesta.
Komment á nýtt útlit sendist hingað.

Föstudagur 16. mars 2001

15:25
Heimasíða fyrir IT
Já menn í Iðnaðartæknifræði eru svo sannarlega í takt við nútímann. Það er fyrst núna að menn eru að tala um að gera heimasíðu fyrir deildina. Ég er að spá í að ýta svolítið á eftir þessum guttum og reyna að klína mér inn í þessa heimasíðugerð. Það er alltaf gaman að vinna frumkvöðlaverkefni. Ég mun af sjálfsögðu segja frá hvað gerist með þetta mál hérna en á meðan getið þið skoðað heimasíðu skólans fyrir IT. Glæsileg síða ekki satt.

Mánudagur 12. mars 2001

09:16
Peningar í klósettið
Á síðastliðinn fimmtudag fór ég loksins og borgaði svínahirðunum hjá sektadeild lögreglunnar sekt þá er ég hlaut einhverntímann í nóvember. Þá var ég einmitt búinn að fá enn eitt hótunarbréfið frá þeim þar sem hótað var fjárnámi og öllum pakkanum. Það er víst best að borga þegar svo stendur á. En ef þið lendið í því að skulda löggunni og eigið ekki fyrir því þá skulið þið passa ykkur á því að tala ekki við feitu beljuna í móttökunni. Hún ræður engu og getur ekkert hjálpað manni. Ég spjallaði við einhvern eldri mann og hann reddaði mér nokkurra daga frest sem dugði til þess að raka saman þessari gríðarlegu fjárhæð 12.000 kr. Það kom mér reyndar á óvart að þegar ég fór að borga sat í móttökunni önnur ekki-eins-feit belja. Þeir hljóta að hafa fjarlægt hina með kranabíl. Þessi nýja belja var á fullu í símanum að tala við alvöru glæpon sem skuldaði í heildina um 250.000 kr. Þrátt fyrir það var hún að sleikja hann upp og bjóða honum alls kyns díla og alls ekki hóta honum fjárnámi. Það er greinilega betra að skulda meira, það bætir samningsstöðu manns gagnvart löggunni.

Föstudagur 2. mars 2001

15:58
Bjór, Bjór og aftur Bjór
Nú þegar lakkrísprófinu er lokið hefur komið á daginn að óþarfi var að hafa áhyggjur af þessu skítaprófi. Reynar er greyið lakkrísinn eitthvað að kvarta þar sem það þurfti að reikna eitthvað smá á þessu prófi. En nóg um það. Nú er það bara að drífa sig heim í partýgallann og gera sig til fyrir bjórslaginn í kvöld. Bekkurinn stefnir að almennri ölvun og er það gott. Nú þegar þetta er skrifað hafa flestir í bekknum vætt kverkarnar með einum köldum og svo er það bara vísó með lakkrísnum í Símann. Víst er að þeir veita vel og mun IT2 nýta það sem fyrri daginn.  Svo er það beinustu leið á klaustrið þar sem fyrstu 120 lítrarnir eru fríir. Við stefnum að því að ná í ca. 60 af þessum 120 lítrum og verðum þá að öllum líkindum orðnir allgóðir. Mitt persónulega markmið í kvöld er að vera orðinn dauðadrukkinn kl. 03:00, en um það leitið árið 1978 fæddist ég einmitt. Takk fyrir það og skemmtið ykkur vel í kvöld.

Fimmtudagur 1. mars 2001

23:40
Lakkríspróf
Á morgun er próf í Stjórnun Rekstarkerfa. Eitt af lakkrísfögunum okkar í IT2. Menn sitja hér í heimastofunni góðu og Champa og fá sér einn og einn öl í stað þess að læra um Virðiskeðju Porters, Gæðahúsið og fleira spennandi. Menn virðast hugsa meira um vísindaferðina á morgun (Síminn) og bjórkvöldið sem mun fylgja en þetta andskotans próf. Þetta lýsir ágætlega hugarfari bekkjarfélaga minna. Enda höfum við ekki ástæðu til annars þar sem við tökum Lakkrísinn iðulega í þurrt rassgatið þegar kemur að einkunnum fyrir skilaverkefni. Greyið Lakkrísinn kann ekkert að reikna og virðast geta klúðrað ótrúlega léttum dæmum sem við hlæjum að.
By the way. Eru ekki allir búnir að skrá sig?