|
Borgina í hendur hægrimanna
Nú eru menn alvarlega farnir að velta fyrir sér sveitastjórnarkosningunum, enda eru þær næstu meiriháttar kosningarnar sem fram munu fara hérlendis að öllu óbreyttu. Mesta umræðan virðist alltaf spinnast um borgina og þá aðila sem um hana berjast. Enda ekki skrýtið, verið er að berjast um höfuðborg landsins, borg allra landsmanna. Það þykir nauðsynlegt að henni sé stjórnað af röggsemi og hörku, af fólki með viti í kollinum, en þessi hugsun fór eitthvað fyrir ofan garð og neðan hjá kjósendum á höfuðborgarsvæðinu í síðustu sveitastjórnarkosningum.Nýjasta hugmyndin sem litið hefur dagsins ljós í fjölmiðlum er sú að Björn Bjarnason menntamálaráðherra með meiru muni láta slag standa, ganga út af þingi og verða oddviti sjálfstæðismanna í borginni nú í næstu kosningum. Margeir Pétursson, einn áhrifamesti maðurinn innan Sjálfstæðisflokksins vildi alls ekki útiloka það og sagði að í raun myndi það aðeins auka kostina í þeirri stöðu sem flokkurinn væri í.
Björn er þekktur fyrir hæfileika sinn í ræðuflutningi, hversu örugglega og skelegglega hann flytur mál sitt og ekki síst hversu sannfærandi hann er.
Það er nokkuð ljóst að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir má fara að vara sig, loksins er sá möguleiki í stöðunni að hún hitti ofjarl sinn, manninn með svörin, mannin með aflið og manninn sem fólkið vill sjá reisa borgina úr ösku R-listans.
höf: Stefán Stefánsson | 22:58 |
#
![idf.il]()
höf: Einar Björgvin Sigurbergsson | 10:46 |
#
Kennsla
Undirritaður hefur komist að því á löngum ferli sínum innan íslenska skólakerfisins að þar sé kennsla á fornaldarstigi. Mikið er lagt í það að hafa yfirbyggingu flotta og glæsilega en þegar kemur að því að kenna fólki með skynsömum aðferðum sem skipta máli fyrir nemandann í framtíðinni þá bregst kerfið. Það er lögð allt of mikil áhersla á smáatriði, t.d. er lögð mikil áhersla á það að skrifa allan textann í verkefnum í ritvinnslu í stað þess að kenna fólki eitthvað á forritið sjálft. Öllum tímanum er eytt í svona fávís tiltæki þegar mikilvæg kennsla er látin sitja á hakanum með þeim afleiðingum að þegar mest þrýtur á að fólk noti þekkingu sína á þá skortir hana. Meira um þetta síðar.
höf: Einar Björgvin Sigurbergsson | 09:23 |
#
Stossel Pistlar John Stossel´s í 20/20 sem er sýndur á Skjá Einum eru oft prýðisgóðir. Á laugardaginn sá ég þar sem hann var að benda á hve skattakerfið í Bandaríkjunum væri hræðilega þungt í vöfum. Skattalögin sjálf eru einar fjörtíuogsexþúsund blaðsíður. Og árlega eyða Bandaríkjamenn 125 milljörðum bandaríkjadala í aðstoð sérfræðinga við útfyllingu skattakerfisins, og síðast en ekki síst þá eyða Bandaríkjamenn einum 6 milljörðum klukkustunda við gerð skattaskýrsla ár hvert.
Annars líst mér afskaplega vel á skattalækkanirnar sem Bush leggur til enda eru skattalækkanir hið besta mál. 1,6 trilljón dala dágóð summa það og lækkunin verður meira að segja afturvirk þ.e. til upphafs þessa árs. Við þetta tækifæri minnist ég þess þegar Gore sagði í kosningabaráttunni vestra að hann hyggðist bara lækka skatta á millistéttina en Bush sagðist ætla að lækka skatta allra.
höf: Steinar Jonsson | 00:37 |
#
Leikfimikennsla í framhaldsskólum
Undirritaður hefur fylgst með áhugaverðum greinaskrifum á framtidin.mr.is þar sem viðraðar hafa verið ýmsar hugmyndir um tilgang leikfimikennslu í skólum af nemendum Menntaskólans í Reykjavík. Spurningin er sú: ættu framhaldsskólarnir (ríkið) með námsskrám sínum að skylda fólk til þess að stunda svokallaða “heilsurækt” sem fer fram með því að láta nemendur taka kollhnísa, standa á höndum o.s.frv.
Þurfa framhaldsskólarnir að vera með þessa forsjárhyggju? Nei fólk á að bera ábyrgð á eigin heilsu og líkamsrækt, það á ekki að hafa leikfimi sem skyldugrein í framhaldsskólum. Mótrökin sem ég heyri oftast (frá leikfimikennurum) eru sú að “unglingar í dag sitji alltaf fyrir framan tölvuna”. Þetta lýsir engu öðru en vanþekkingu á högum unglinga. Ég veit ekki betur en að flestir stundi einhverskonar líkamsrækt hvort sem það eru íþróttir, útimennska eða einfaldlega að mæta í líkamsræktarstöðina. Og þeir sem ekki gera það eiga bara að hafa rétt á þvi. En þeir sem vilja mæta í leikfimi geta farið þangað og allir verða ánægðir. Próf í leikfimi eru sérstök útaf fyrir sig. Það að prófa fólk í því að klifra upp kaðal, stökkva yfir bekk jafnfætis, lyfta x kg upp x mörgum sinnum, hlaupa einhverja vegalengd á ákveðnum tíma og hið alræmda píptest (sem mælir þol og gefin er einkunn fyrir). Mæla þessi próf íþróttalega hæfni, er hægt að láta fólk sem er misjafnlega af guði gert til þess að taka þessi próf verða metin á einhverjum stöðlum sem eru til á blaði uppí menntamálaráðuneyti. Nei segi ég.
e.s. Höfundur er ekki að skrifa þessa grein vegna lélegra einkunna í íþróttum (raunar hefur honum gengið furðuvel), heldur vegna þess að honum finnst þarft að þessi umræða komi upp.
höf: Einar Björgvin Sigurbergsson | 16:59 |
#
Rumsfeld
Donald Rumsfeld hefur nýlega tekið við sem varnarmálaráðherra Bandaríkjanna af William Cohen. Rumsfeld hefur langan embættisferil að baki. Hann er fæddur í Illinois árið 1932. Gekk í Princeton og fór þaðan í sjóherinn þar sem hann var siglingafræðingur og glímumeistari sjóhersins. Hann var fyrst kosinn á þing árið 1962, þá þrjátíu ára gamall og var endurkjörinn þrisvar sinnum. Hann hætti á þingi árið 1969 til að taka við störfum hjá Nixon. Árið 1973 varð hann sendiherra Bandaríkjanna hjá Nató og þeirri stöðu gegndi hann þangað til Ford kallaði hann til baka og varð hann þá starfsmannastjóri Hvíta hússins árið 1974-75 og varnarmálaráðherra 1975-1977. Eftir 20. ár í opinberri þjónustu fór hann að vinna í einkageiranum þar sem hann gegndi ýmsum ábyrgðarstörfum svo sem stjórnarformaður, aðalframkvæmdarstjóri og forstjóri G.D. & Searle lyfjafyrirtækisins. Hann hefur einnig gegnt fjölmörgum öðrum ábyrgðarstörfum fyrir opinbera aðila og fyrirtæki. Donald Rumsfeld var veitt æðsta orða Bandaríkjanna sem borgarar fá, Orðu friðarins árið 1977. Það er því ljóst að í varnarmálaráðuneytið velst mjög hæfur einstaklingur sem á vonandi eftir að standa sig vel í einu af erfiðustu embættum heimsins.
höf: Einar Björgvin Sigurbergsson | 21:19 |
#
Írak og viðskiptabannið
Nú er nýlega liðinn áratugur frá því að Persaflóastríðið hófst. Í kjölfar stríðsins var sett viðskiptabann á Írak sem hefur verið afskaplega umdeilt. Samkvæmt því er Írökum bannað að kaupa vörur og efni sem gætu nýst þeim til vopnagerðar en því miður falla undir þetta nauðsynjavörur eins og klór. Írökum er ekki bannað að kaupa maltvæli eins og svo margir virðast halda fram. Ein helstu rök andstæðinga bannsins er að það bitni á hinum almenna borgara í Írak og það sé vegna þess að Írakar geti ekki selt olíu að þjóðin sé hreinlega komin aftur á steinaldarstig. Þetta er alrangt. Írakar mega samkvæmt Olíu-fyrir-mat samkomulaginu selja eins mikla olíu og þeir vilja og eiga Sameinuðu Þjóðirnar að ráðstafa tekjunum til að kaupa nauðsynjar. Írakar kjósa bara ekki að gera þetta. Írakar seldu olíu fyrir 25 milljarða dollara að jafnaði fyrir Persaflóastríðið. Og væri þeim í lófa lagið að selja nógu mikið af olíu til að kaupa allar þær nauðsynjar sem þjóðin þarfnast. Írak var annað mesta olíuútflutningslandið áður en þeir réðust á Kúvæt og eru þeir meðlimir í OPEC. En Saddam Hussein einfaldlega kýs að selja ekki olíu svo að hann geti háð áfram árangursríkt áróðursstríð við Vesturlönd. Ég er andvígur viðskiptabönnum og vill algerlega frjáls viðskipti en mér finnst sjálfsagt að landi sem stjórnað er af einræðisherra sem ógnar nágrönnum sínum með efna-, sýkla- og jafnvel kjarnorkuvopnum séu ekki seld efni til vopnagerðar. Fagna ég yfirlýsingum Bush og Powells utanríkisráðherra Bandaríkjanna um að þeir muni herða á banninu og beita Íraka enn meiri þrýstingi. Ennfremur hafa Bandaríkjamenn ákveðið að senda INC uppreinsnarhreyfingunni í Írak fimmhundruð milljónir dollara til að heyja öfluga baráttu gegn Saddam, og koma honum frá.
höf: Steinar Jonsson | 21:13 |
#
|